|
Aflamet hjá Arnari í einni veiðiferð |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 4.3.2010 | 06:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ég verð eiginlega sökum míns stranga uppeldis með guðhræðslu og góðum siðum að byrja á því að útskýra titillinn á færslunni. Hann er tilkominn eftir reynslu mína af síðustu færslu. Þar var fjallað um kynlíf ellilífeyrisþega í Bretlandi. Þar sem ég er vanur að meðaltali tveimur lesendum á dag á bloggsíðu minni, kom það mér alveg í opna skjöldu að mörg hundruð lesendur kíktu á þessa gjörsamlega vita gagnlausu og heimskulegu færslu um enn heimskulegra efni! Hvað varðar mig um kynlíf breskra gamalmenna? Tengingin við þessa nauðaómerkilegu uppfyllingarfrétt og von um krassandi svalllýsingar, hefur sjálfsagt eitthvað að gera með þessar ofurvinsælir mínar að gera svo þið vitið að ég ofmetnaðist ekkert. Staðreyndin er semsagt sú að kynlíf, ofbeldi og Icesave selur. Það eina sem minnir á þetta sukk allt saman í þessari færslu er hinsvegar titillinn, því restin fjallar um sauðfjárrækt í Skefilstaðahreppi til forna. Nei annars, það tekst örugglega einhverjum að snúa því upp í klám. Nei nú er stefnan tekin á 5 lesendur á dag. En að öllu gríni slepptu þá er ég í miðju rannsóknarverkefni á Facebook. Hvar nær maður betri þverskurði af fólki en nákvæmlega þar. Vegna þess að ég er atvinnubullari hef ég farið hamförum á Facebook og bullað þar eins og annarsstaðar. Hlegið mig máttlausan af statusum annara eins og "er að steikja kleinur" og "búin að snúa þeim við". Að maður tali nú ekki um "ég er víst alveg frábær" statusum, sem fólk með dapurt sjálfsmat notar gjarnan, til að upphefja slæma samvisku og annað sem forgörðum fer, og ég verð að minnast á hjón sem skrifast á í gegnum statusa hvors annars sitjandi kannski í sama stólnum á víxl. Það toppar allt og ein besta birtingarmynd þessarar gagnlausu iðju að lifa lífinu opinberlega. Ég er þeirrar skoðunar að fólk taki sig sjálft fullalvarlega. Við erum öll fífl á einhvern hátt. Ég er til dæmis algert fádæmafífl og það sem meira er, að það er fullt af fólki tilbúið í að skamma mig fyrir það. En þá að þessari bjánalegu tilraun minni. Statusar mínir hafa verið allavega, vitnað í djúp spakmæli meistara og skálda....yfirleitt engin viðbrögð. Skrifi ég hinsvegar "er að fara á klósettið" eða "er að fara í myndatöku hjá Playgirl" þá fæ ég skammir fyrir hverslags andskotans fáviti ég geti verið! Þá tók ég mig til og stofnaði hóp með nafninu "Get ég fengið að vera hálfviti í friði?" og sendi vinum mínum boð. Ég vildi eingöngu kanna hverjir taka sig alvarlega og hverjir ekki í mínum vinahópi....Innan þriggja klukkustunda voru komnir 500 aðdáendur! Ekki nema brot af því mínir vinir, því þeir vilja margir halda áfram að skamma mig í gegnum mailið yfirleitt sem betur fer...Það gleðilega sem kom út úr þessari vísindalegu rannsókn er að það eru til miklu fleiri fífl en ég! Þá ætla ég ekki að fara út í hversu mikil fífl þetta eru, en mörg eru þau...og langar út úr skápnum!
Gulli litli vill vera vitleysingur.....í friði..
P.S. Þetta er síðasta klámfærslan mín.....ég lofa!
Bloggar | 17.2.2010 | 08:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
|
Fráskildir stunda oftast kynlíf |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 16.2.2010 | 11:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Þar sem það raskaði verulega heimsfriði og bloggheimar fóru á hliðina yfir síðustu færslu minni ákvað ég að taka mig saman í andlitinu(eða því sem eftir er af því) og ljúga satt núna. Sannleikurinn er sá að það gerist aldrei neitt í lífi Gulla litla. Talandi um Gulla litla, hann er jú sá eini sem ég hef smá þekkingu á og sá eini sem verður fyrir öllum þessum lygasögum og þolir að verða fyrir þeim, og sá eini sem hefur ekkert orðspor að verja. Afi minn Skafti var lítill vexti, en andlegur risi og húmoristi. Hann er höfundurinn að vörumerki mínu Gulli litli. Tólf ára var ég vaxinn honum yfir höfuð en það breytti engu, ég var Gulli litli! Þegar ég var kominn undir fertugt, höfðinu og herðunum hærri en hann, var ég enn Gulli litli. Þegar hann dó nærri 91 árs gamall, var ég enn Gulli litli. Mér þykir afar vænt um þessa nafngift og nota hana hvenær sem tækifæri gefst, en sannleikurinn er sá að ég er bara tæplega meðalmaður að hæð, greind, þroska og útlits. En ég nota þetta til að gera mig mikinn og langt til Húsavíkur. Svona fara bloggin hjá manni þegar maður er ekki tilbúinn með efni í blogg.....og ert undir meðallagi greindur, með athyglisbrest og langar að verða stór......jæja eru ekki allir í stuði? Annars man ég eftir því þegar ég var lítill...þá meina ég pínulítill, að ég var afar óánægður með nafnið mitt. Það er ekkert hægt að uppnefna mann þegar maður heitir Gulli litli. Eins og t.d. Erna ferna, Óli drjóli, Jónína .......uhh...tjónína, Arnar barnar og þar fram eftir götunum. En Gulli...pulli? Ég hallast að því að ég sé svona skemmdur út af því að ég var aldrei uppnefndur þegar ég var lítill.....minni. Talandi um minni...ég heyrði einn segja um daginn að hann vantaði stærra minni í tölvuna sína.....stærra minni? verður maður ekki að ákveða sig hvort það er stærri eða minni? Er nokkuð sektað fyrir að bulla svona?...hálfblankur þið skiljið...
Gulli litli stærri minni.....Verið væn við hvort annað og notið helgina til að uppnefna mig..
Bloggar | 12.2.2010 | 15:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Andinn kom yfir mig og ég setti mig í stellingar til að blogga.......................en svo nennti ég því ekki..
Gulli litli hvunndagshetja..
Bloggar | 12.2.2010 | 10:49 (breytt kl. 10:52) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Jæja góðir hálsar og aðrir ágætir útlimir. Nú get ég ekki orða bundist lengur. Eru völdum mínum og áhrifum engin takmörk sett? Ég er hér í sveita míns andlits að leiða íslensku þjóðina í einar mestu fjárhagslegu ógöngur sem um getur, eiginlega einn eða..... ja ég geri alla vega ekki minna gagn en stjórnmálamennirnir....og það geri ég með því einu, að gera ekki neitt. Nú er svo komið að ég verð að gera örstutt hlé á að leysa íslensku þjóðina úr fjötrum, því nú hefur danska þjóðin leitað til mín. Já, hróður Gulla litla berst víða. Ég fékk bréf frá Region Psykiatrisk Center Rigshopitalet þar sem ég var beðinn um að "hjælpe os til at blive klogere på danskernes seksualliv". Takk fyrir. Er einhver hissa á að ég setji þessar smápústrur uppi á Íslandi á hóld? Jæja en alla vega til að fyrirbyggja allan hugsanlegan misskilning, þá er ekki um neinar verklegar leiðbeiningar eða ráðgjöf að ræða því miður. Ég fór undir eins að velta fyrir mér hvernig stæði á því að ég yrði fyrir valinu í verkefnið, datt kannski í hug að hróður minn hefði borist út fyrir landssteinana, þegar ég um árið, var með tennurnar og hárið. Jæja, ég ákvað að gera mitt besta í ráðleggingum, visku og skemmtilegum minningum frá síðustu öld, það er að segja, þegar var eitthvað kynlíf til staðar hjá mér. Þar stendur einmitt hnífurinn í kúnni. Skemað sem ég þurfti að fylla út (ásamt þúsundum annarra....vildi bara ekki segja það strax..hitt lítur betur út fyrir mig), náði eingöngu til síðustu fjögurra vikna. Þannig að allar spurningar um fjör í rúminu var ég neyddur til að svara neitandi samvisku minnar vegna. Ég er ekki frekur til fjörsins, því að Halldór Kiljan Laxness er sá eini sem hefur haft ofan af fyrir mér í rúminu síðustu vikur. En þið verðið að viðurkenna að þetta leit vel út í byrjun boggs...
Gulli litli ....rismikill og og og og....jájá.
Bloggar | 27.1.2010 | 21:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Bloggar | 11.1.2010 | 11:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Bloggar | 4.1.2010 | 18:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Vegna fjölda áskorana og tuðs og suðs hef ég ákveðið að lista upp afrek mín á árinu sem er að líða. Verður ekki farið mjög náið í afrekin og ekki út í nein smáatriði einfalldlega sökum þess að það yrði og langt mál og algerlega óvíst að lesendur mínir báðir(já þú líka pabbi) myndu halda út þá lofgjörð. Verður þetta einföld upptalning til að gera ekki lítið úr þeim sem ekkert gerðu og engu nenntu á árinu.
1. Árið byrjaði vel hjá mér....ég stóð algerlega við áramótaheitið mitt....slappaði af í jan.
2. Man í fljótu bragði eftir að hafa vaskað upp í febrúar!
3. Mars var átakamánuður hjá mér.....ég fór í bað.
4. Apríl.....man ekki eftir neinu sérstöku, en ég hlít að hafa gert eitthvað afgerandi.
5. Maí er alltaf annasamur hjá mér....ég dreif mig í að eiga afmæli maí...líka á árinu þar á undan.
6. Júní.......gaf 50 krónur danskar til Hjálpræðishersins í Aarhus...til að þau þyrftu ekki að syngja.
7. Júlí var einfalldlega of heitur til að gera nokkurn skapaðan hlut!
8. Ágúst....sjá júlí.
9. September...var svo þreyttur eftir annríki ársins að ég fór til Tyrklands..
10. Október....hvíldi mig eftir Tyrklandsförina á Íslandi....Þetta er almennur fengitími..en ég hafði ekki orku...
11. Nóvember...fór allur í að undirbúa desember..
12. Desember fór í að jafna sig eftir undirbúninginn í nóvember fyrir desember...og eitt enn; fór aftur í bað....
Munið bara elskurnar að það er hugurinn sem skiptir máli ekki hvað þú gerir..
Gulli litli zzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzz
Bloggar | 30.12.2009 | 12:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Þetta er sorgarblogg! Þannig er að ég missti nákominn ættingja á dögunum. Eða öllu heldur dó hann 2006 í hörmulegu námuslysi. Ég geng nú um í svörtum sorgarklæðum svona til öryggis, ef ske kynni að ég hafi þekkt B.D. Hjaltason. Hann hótar nefnilega að arfleiða eða kannski afvegaleiða mig af 17,8 milljónum dollara. Nú er svo komið að mig rámar þónokkuð í hann bara akkúrat núna. Ég sé fyrir mér Wrigleys tyggigúmmí og Chevrolet Impala....rauðan. Eina sem ég þarf að gera er að gefa einhverjum Múhamet Ahma lögfræðingi upp netbankann minn á facebook og málið er í höfn.
G.O. Hjaltason gáfnaljósleiðari....
Bloggar | 23.11.2009 | 12:01 (breytt kl. 19:50) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)




jobbisig
jensgud
gudnim
skagstrendingur
tjaldurinn
illa
kiddirokk
lovelikeblood
ingvarvalgeirs
annaeinars
mrniceguy73
aingolfs
beggita
kaffi
bjarnihardar
gisgis
brjann
gattin
brandarar
ellertvh
ea
fjolan
lillo
vglilja
lucas
kokkurinn
hugs
gunnagusta
gudruntora
gthg
hallarut
hannesgi
hallibjarna
blekpenni
hildurhelgas
don
hronnsig
jahernamig
ingvalg
boi
jakobsmagg
jevbmaack
jonaa
jonbjarnason
prakkarinn
ktomm
kobbi68
kolbrunb
larahanna
meistarinn
maggib
skandalan
omarragnarsson
palmig
hafstein
frisk
siggileelewis
nimbus
sigurjonth
luther
solveig-kristin
lehamzdr
steinibriem
lsg
maddit
svanurg
visur7
vefritid
postdoc





