Var Júdas lögfræðingur?

Um Júdas hefur verið mikið skrifað og rætt og ekki hefur karlinn alltaf farið vel út úr þeim umræðum. Almennt talin svikari og skúrkur. Þó hafa síðustu ár komið fram kenningar um að kannski hafi Júdas ekki verið svo slæmur eftir allt. Mönnum hefur dottið í hug að  hann hafi verið að framfylgja nákvæmlega því sem Jesú sagði honum að gera. Hvað um það, Júdas er samnefnari yfir svikara hvort sem hann á inni fyrir því eður ei. Hvað væri Júdas að gera ef hann væri á markaðnum í dag? Miðað við myndina sem okkur hefur verið gefin er ekki líklegt að hann starfi sem sjálfboðaliði hjá mæðrastyrksnefnd, er það? Í Kassagerðinni? Nei, ég held ekki. Í mínum pælingum væri hann lögfræðingur..... Það er auðvitað flestir lögmenn góðir menn en orðspor þeirra yfirleitt á svipuðum nótum og orðspor Júdasar...

 

JÚDAS LÖGFRÆÐINGUR

 

MESSÍAS VAR AÐ MÖNDLI SÍNU

AÐ MÁLA KROSSINN SINN RAUÐA

MEÐ SANDPAPPÍR FÍNAN OG FÚAVÖRN

SVO FLOTTAN AÐ GERA KAUÐA

Á BÍLASTÆÐI VIÐ BARÓNSSTÍG

BARÐI HANN RYÐ AF SAUMUM

Í HÚSASMIÐJUNNI HEFIL FÉKK

SEM HENTAÐI LÚKUNUM AUMUM

 

MEÐ CAMELPAKKA OG COKE Í DÓS

KARLINN VAR HÁLFPARTINN ÞUNNUR

ÞVÍ LÆRISVEINAR OG LALLI DJÓNS

OG LÉTTKLÆDDAR FRAKKAR NUNNUR

SEM DÖNSUÐU Í GÆR Í VEISLUNNI VILLT

 VITRINGABREIK AF NATNI

HANN Í FÁTI BREYTTI Í BRENNIVÍN

BLINDFULLRI FÖTU AF VATNI

 

EN JÚDAS LÉK VIÐ LITLA FINGUR

LEYFIÐ BÖRNUM AÐ KOMA TIL MÍN

ÉG BÆTA VIL MITT BESTA TRIX

OG BLINDUM AÐ GEFA SÝN

EN MESSÍAS MÆLTI TRIKKIÐ Á ÉG

OG MAÐUR ÆTTI EKKI STELA

EN JÚDAS KYSSTI Á ENNIÐ KALT

HEY KIPPIÐ BURT ÞESSUM DELA

 

Í STEININUM HAFÐI SOFIÐ Í NÓTT

SILFRIÐ VAR JÚDASAR NÚNA

EN FÉLAGARNIR HJÁ FÓGETA

SEM FENGIÐ LOKS HÖFÐU TRÚNA

OG LAUSUM SLEPPTU GEGN SKILORÐI

EF SEKTINA MYNDI HANN GREIÐA

OG SEKTINA GREIDDI EINHVER ÚTGERÐA-GAUR

MEÐ GÍRÓI NORÐAN HEIÐA

 

 

 

 

 

19/10 2005 -28/10.05. © ILLUG

e7-g-f-e7-fism-bm-d-e7

 

Lagið er í spilaranum hér við hliðina. Gítarhljómar og allt. Reynið að hafa skoðun á því sem hér stendur.............

 

Gulli litli svikahrappur... 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gulli litli

Allar skoðanir leyfðar.....

Gulli litli, 7.7.2008 kl. 07:55

2 Smámynd: Gulli litli

Kannski er Júdas alls ekki umdeildur..

Gulli litli, 8.7.2008 kl. 09:31

3 Smámynd: Gulli litli

Kannski er öllum sama um Júdas..

Gulli litli, 9.7.2008 kl. 04:32

4 Smámynd: Gulli litli

Hver er þessi Júdas?

Gulli litli, 9.7.2008 kl. 15:42

5 identicon

Það þorir greinilega enginn að kommenta hér, eða kannski virkar ekkert að blogga nema tagga frétt..

En allavega, alveg snilldar texti - og ég held með Júdasi; ég trúi því að hann hafi aðeins verið peð í hinni villtu skák Guðs og Jesús. Amen. 

lsg (IP-tala skráð) 10.7.2008 kl. 20:11

6 Smámynd: Gulli litli

Merkilegt ad thad kommentar enginn thegar madur leggur hjartad á bordid. En bulli madur einhverja helvítis vitleysu thá skrifa allir,...

Gulli litli, 11.7.2008 kl. 04:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband