Vísitöluvolvoleiðindi..

Öll þekkjum við Volvo 144. Þennan Volvo%20144%20(1968)ferkantaða bíl sem karlarnir með hattana keyra. Mjög leiðinlegt útlit og þreytt finnst mér. Þó afskaplega dugmiklir og traustir bílar. En svona hafa ekki allir Volvo bílar verið. Það er að segja með "leiðinda famelíu vísitölu karla með hatt" útlit. Volvo hefur átt skemmtilega og sportlega spretti í hönnun. Svo sportlega að bíllinn þeirra hefur komist í sjónvarpspennu-þáttaröðina The Saint eða Dýrðlingurinn eins og mig minnir að þættirnir hafi heitið á ástkæra ylhýra. Þar ók Roger Moore ofur- töffari Volvo p1800.....Um miðjan sjöttaRoger&Volvo áratuginn vantaði Volvo sportbíl inn í sína framleiðslu eftir hörmungarsögu p1900 bílsins sem var algerlega misheppnaður. P1900 seldist aðeins í 68 eintökum! Hugmyndina af p1900 fékk einhver snillingurinn hjá Volvo þegar hann sá Corvettu á sýningu. Bíllinn var framleiddur úr trefjaplasti eða fiberglass. Bíllinn var hörmulegur í alla staði og var hætt við framleiðslu eftir þessi fyrrnefndu 68 eintök, og bíltúr sem einhver yfirmaður Volv1900_vermant1blo fór á svona bíl og hélt að hann myndi hrinja yfir sig. En þá aftur að p1800 bílnum. P1800 var framleiddur með b18 vél og svo seinna b20. Hann varð þokkalega vinsæll og var framleiddur frá 1961 til 1973 í 47.492 eintökum og er mjög eftirsóttur bíll hjá söfnurum í dag. P1900 er auðvitað mjög vinsæll líka hjá söfnurum í dag og þar sem mjög fá eintök eru til. Þá að enn einum Volvo. Við semsagt munum öll þennan leiðinlega trausta Volvo 144. Bandaríkjamenn á þeim tíma (sjöunda áratugnum) gerðu aðallega kröfur um tvennt þegar kom að bílum. Þeir áttu að eyða miklu bensíni og vera með langt húdd (hood). Svar Volvo við þessum kröfum kanana, var einföld. Þeir tóku Volvo 144 og lengdu hann um 15-20 cm,Volvo-164-Jakob1 bættu tveimur cylindrum(b30) við og leðurinnréttuðu og kölluðu Volvo 164. Þetta er auðvitað smá einföldun. Bíllin er mjög sportlegur að framan. Minnir á Rolls svei mér þá. Hann var fyrst hannaður seint á sjötta áratugnum og þá fyrir heimamarkað sem þótti of lítill. Svo var rykinu dustað af hugmyndinni er bandaríkjamenn fóru að krefjast meiri luxus og stærri véla. Volvo 164 var framleiddur frá 1969 til 1975  í 146.008 eintökum. Þetta skrifa ég eingöngu af því ég er svekktur yfir því að fá ekki að fá ekki svör við spurningu minni um Adam og Evu og það getur meira en vel verið að ég haldi áfram svona leiðindum. Þar hafið þið það...

 

Gulli litli fílurass...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Gulli fílurass. Bílar? eru það ekki svona tæki til að fara frá punkti A til punktar B?

Þar með er minni kunnáttu lokið. Kannski Adam hafi boðið Evu á rúntinn?

Rut Sumarliðadóttir, 19.9.2008 kl. 12:43

2 Smámynd: Gulli litli

Jú frá a til b. Minn veikleiki er bíladella og þá aðallega á gömlum bílum. Þar með er minni kunnáttu lokið. A og E á rúntinum? Athyglisvert..

Gulli litli, 19.9.2008 kl. 12:51

3 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Við erum öll að rúntast eitthvað daginn út og inn!

En ég get nú ekki annað en brosað við þessu, einn minn besti vinur nefnilega búsettur í Gautaborg og hefur nú aldeilis eitthvað komið þar nálægt Volvo!

Magnús Geir Guðmundsson, 19.9.2008 kl. 17:27

4 Smámynd: Þóra Lisebeth Gestsdóttir

skemmtileg lesning :) alltaf gott ad fraedast um hluti.  kvedja fra Englandi, eilifdarturistinn

Þóra Lisebeth Gestsdóttir, 19.9.2008 kl. 17:53

5 Smámynd: Gulli litli

Magnús; Gautaborg er jú Volvo bærinn sjálfur..

Þóra Lísa; Gaman að sjá þig hér aftur. Takk fyrir innlitið..England já. Ég á son þar...

Gulli litli, 19.9.2008 kl. 20:54

6 Smámynd: Gulli litli

Ég keypti mér líka Volvo 164 1970 í Gautaborg í vor.....en það er nú önnur saga.....

Gulli litli, 19.9.2008 kl. 21:07

7 Smámynd: Steingrímur Helgason

Þarna kom nú upp í mér nostalgía um 264 drozzíuna mína.

Að hafa nennt að keyra allt þetta 'zænzka' ztál !

Steingrímur Helgason, 20.9.2008 kl. 00:11

8 Smámynd: Gulli litli

Ég get mér þess til að þú eigir hatt líka?

Gulli litli, 20.9.2008 kl. 08:04

9 Smámynd: Brattur

... verst hvað bílar í dag eru allir eins... eiginlega sama hvaða tegund það er... í gamla daga voru þetta alvöru drossíur... annars er ég ekki góður í bílum...  ef ég er spurður hverning bíl ég er á, segi ég bara; gráum

Brattur, 20.9.2008 kl. 10:00

10 Smámynd: Gulli litli

Já það var svona viss karakter í bílum í gamla daga. Þess vegna hef ég engöngu áhuga á gömlum bílum..

Gulli litli, 20.9.2008 kl. 10:02

11 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Stráka, má til með að segja ykkur sögu af manni vestur á fjörðum. Vitið var ekkert að þvælast fyrir manninum. Hann fór sem sagt til bankastjórans og bað um lán fyrir bíl og stjórinn spurði hvernig bíl og hann svaraði; rauðan. Þessi saga ku vera sönn. Varst þetta þú Brattur?

Rut Sumarliðadóttir, 20.9.2008 kl. 11:37

12 Smámynd: Gulli litli

Mér heyrðist svartur ullarlagður detta...

Gulli litli, 20.9.2008 kl. 11:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband