Ég verð að benda öllum illa innrættum manneskjum á starf sem passar fullkomlega öllum óþverum heimsins! Það er að gerast vicecert hjá dönsku leigufélagi! Það er að vísu ekki vel launað en þar má fá útrás fyrir alla ólund og andstyggilegheit er rúmast í einu sálartetri. Þar hefurðu peninga sauðsvarts almúgans undir höndum til eignar og ábúðar og getur stolið og ákveðið einhliða hversu mikið þú villt taka af þeim og á meðan notið þess að sjá þjáninguna í andliti þessara aumingja sem varla eru matvinnungar. Þau hafa að vísu alltaf staðið skil á leigunni en það gefur engan rétt til að slíta gólfum!! Svo þarf líka besti vinur minn sem vill svo skemmtilega til að á gólfslípunarfyrirtæki, að hafa eitthvað að gera. En vitið þið hvað; þetta er síðasta "indskud" sem Gulli litli aumingi lætur ræna af sér!!
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.