Ég er orðinn leiður á Ísbjarnarblúsinum.....Morðingjar, úlfur, úlfur....Veit enginn að ísbirnir eru hættulegir ? (ha, þessi þvílíka dúlla). Vitið þið að ísbjörn getur haldið á belju milli framhrammana? Vitið þið að ísbjörn borðar feitan útsel í morgunmat? Þetta veit ég þó að ég sé alin upp á eyðislóðunum sem að bjössi fannst á. Þegar ég var lítill (minni) langaði mig óskaplega að verða sauðfjárbóndi á þessum slóðum er yrði ég stór. En svo varð ég aldrei stór. En ef ég hefði orðið stór sauðfjárbóndi norður á Skaga hefði ég allavega ekki viljað fá ísbjörn í fjárhúsin um miðjan sauðburð. Þá erum við komin að aðalmálinu þið heimskuþý sem viljið fá ísbjörn sem gæludýr. Það býr nefnilega fólk á þessum slóðum þó ekki séu það margir. Þessi mannslíf (flestir í ætt við Gulla litla) eru dýrmæt.......Þess vegna var bjössi skotinn............og hana nú.....
Gulli sauður
Flokkur: Bloggar | 4.6.2008 | 12:18 (breytt kl. 12:20) | Facebook
Athugasemdir
Sæll Gulli.
Það er ótrúlegt bullið sem komið hefur frá fólki í þessu máli.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 4.6.2008 kl. 16:10
Já sæll Axel. Fólk heldur að þetta sé leikfang. Fínn pistillinn þinn um málið.
Gulli litli, 4.6.2008 kl. 17:19
Til hamingju. Iss thetta er nú ekkert. Ég vann einu sinni á svínabúi.......
Gulli litli, 4.6.2008 kl. 23:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.