Færsluflokkur: Bloggar

Nú ertu kominn á hálann ís björn...

Eða gengur þú ekki heill til skógar björn. Greinilega mikið að gerast á æskuslóðum Gulla litla..
mbl.is Lögregla á slóðum ísbjarnarins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áríðandi tilkynning til veffarenda....

Þeir sem ekki eru búnir að fara í kaupfélagið nú þegar að kaupa hið nýja meistarastykki Hvanndalsbræðra KNÚSUMSTUMSTUND er bent á að gera það NÚNA. Ég bíð...................Nú ættu allir að vera komnir með diskinn í hendurnar. Tónlistalega metnaðarfyllsta verk þeirra bræðra hingað til og er að sjá sem að hinir nýju ættleiddu bræður tveir falli vel að þessum helvítis fíflum. Röggi takk fyrir diskinn. Þú ert höfðingi.

 

Allar helstu ömmur og helstu afar Fjalls og Brasaættar hafa verið í heimsókn. Hefur það ekki gert neitt annað en að lífga upp. Kunnum við þeim bestu þakkir fyrir komuna og samveruna.

 

Á morgun verður ef ég man rétt Óskar litli bróðir Gulla litla einu árinu eldri en hann er í dag. Daginn þar á eftir verður Matthías greifi af Höfðakaupstað 848 ára. Hann er stóri bróðir Gulla og Óskars litla sem er litli bróðir Gulla litla sem er þá aftur stóri bróðir Óskars litla....hm....7 júní verður svo uppáhalds elsta dóttir mín og augasteinn 16 ára. Þann sama dag verður Patrekur bróðursonur Gulla litla líka árinu eldri. 25 júní verður svo mín uppáhalds eiginkona til margra ára, 41 árs. Yngri og fegurri en nokkru sinni fyrr...

 

Maímánuðurinn sem var að líða er sá sólríkasti í Danmörku frá því að mælingar hófust 1929.  Hefur Gulli litli aldrei áður verið svona undarlegur á litinn og í laginu vegna sólbruna og grillsteika.

 

Gulli litli brunarúst... 

 

 

 

 


Skýring á skjálftunum á suðurlandi...

Þannig er að Númi bróðir minn til margra ára og spúsa hans voru að eiga barn. Alltaf þegar fæðist barn í Fjallsættinni þá gerast einhverjar náttúruhamfarir. Til dæmis þegar pabbi fæddist 1940 held ég frekar en 1840, braust út heimstyrjöld. Það hefur aldrei fæðst fallegra barn og eru allar kerlingarnar í kaupfélaginu að tala um það (þetta er eins og amma okkar heitin hefði orðað það). Til hamingju með sveininn...

a

Gulli litli kaupfélagsstjóri.... 


Fyrirgefiði fallega fólk...

þeir sem eru þessa dagana að reyna að ná í mig. Það er bara svo gott veður að maður tollir ekki innan dyra þessa dagana. Ég er margbúinn að kveikja á tölvunni með stór áform um að blogga eða skrifa mail nú eða hringja í einhvern......Því miður.....Vonandi haldið  þið áfram að vera vinir mínir....

 

 

Hlass af kærleik......og sól..

Gulli litli sólbrenndi... 


Húllumhæ............

Það er alltaf gaman að fá fólk í heimsókn. Við búum svo vel að fá marga gesti okkur til ánægju og gleði. S5002290S5002291

 

 

 

 

 

 

 

Pabbi og amma rock komu og koma svo aftur seinna......

Svo héldum við veislu með vinum okkar í Danmörku.....fyrst var borðaður eðalmálsverður..

S5002299S5002300

 

 

 

 

 

 

 

 

Það vantar því miður aðalmanneskjuna hana Kittu á myndina, því hún mundar vélina. Börnin borðuðu í sólstofunni....

S5002302S5002303

 

 

 

 

 

 

 

 

Mér sýnist þau hafa skemmt sér vel........

S5002304S5002303

 

 

 

 

 

 

 

 

Allir vinir.........

S5002321S5002329

 

 

 

 

 

 

 

 

Fagrar meyjar og sveinar....S5002324S5002331

 

 

 

 

 

 

 

Svo var gripið í Gibsoninn og utan um konuna....

S5002332S5002333

 

 

 

 

 

 

 

 

S5002334Svo sváfu allir sáttir...Þraungt meiga sáttir sofa..eða sátt meiga þraungir sofa....svefn meiga sofa þraungir...ég meina það fóru svo bara allir að sofa eftir frábæra skemmtun......Það er gaman að eiga góða vini og fjölskildu......(guð hvað þetta var væmið)...

 

lottaluv

Gulli litli... 


Óánægja með Össur...

Við þurfum að veiða allt en lítið af öllu.....svo einfallt er málið...Devil ..
mbl.is Óánægja með hrefnuveiðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vill einhver skipta.....

Nágrannar okkar eru á leið til Íslands í fyrsta sinn. Eins og allir sannir Danir er málið búið að vera í skipulagningu og undirbúningi í mörg ár. Það kom mér hinsvegar ekkert á óvart þegar þurfti að kalla til hjartabílinn frá Falck til þeirra þegar þau heyrðu verðin á Fróni(ýkjur auðvitað). Bjór með sama kílóaverð og kókaín í öðrum venjulegri löndum, kjúklingur bara fyrir sterkustu fjárfesta, bílaleigur og hótel er ódýrara að kaupa með manni og mús og annað í þessum dúr. Þeim var allavega ljóst að þeirra danski en annars ágæti fjárhagur, myndi volgna undir Íslandsreisunni. Þau leituðu til okkar með vandræði sín eða réttara sagt hin danska eðlislæga sparsemi sagði þeim að hér mætti spara peninga. Þau eru semsagt að leita að íslendingum sem eru til í að skipta á bíl og húsi á Íslandi fyrir bíl og hús í Danmörku svona ca 10 daga í sumar. Húsið þeirra er svona 2 til 300 fm, "nedlagt landbrug" í mikilli náttúrufegurð og 1 km frá baðströnd og nokkrir km til Djurs Sommerland sem er risa fjölskildugarður. Svo auðvitað eðal nágrannar, Gulli litli og hans fallega fjölskilda. Þau eru mikið sómafólk á sextugsaldri, það er að segja nágrannarnir, og þau gera að sjálfsögðu þá einföldu kröfu að það verði fólk sem kann að umgangast hluti af virðingu, sem kemur í þeirra hús.  Þeim er nokkuð sama hvar húsið er á Íslandi. Hafið samband við Gulla litla..................

Það er svo gaman í rúminu hjá okkur...

hjónunum núna. Ástæðan er ekki grái fiðringurinn eða einhver ólyfjan, nei. Ástæðan eru dagblöð og mikið af nýju lestraefni frá Íslandi. Ekki svo að skilja að okkur hafi leiðst í rúminu fyrir íslenska lesefnið, en svona á annan hátt gleðjumst við og er það fullkomin viðbót við gleðina sem var í rúminu fyrir. Burðarmenn gleðitíðindanna voru svo pabbi minn og spúsa hans(daglega kölluð amma rock). Þau heiðruðu okkur með nærveru sinni nú á dögunum og ætla að gera það eitthvað áfram. Eins og fyrr segir komu þau færandi hendi, hlaðin bókum, blöðum og íslensku góðgæti svo að verulegur fengur er í.

 

Gulli litli dónalegi.... 


Sýnum stuðning og samhug...

 

 

 

            http://sigrunth.bloggar.is/blogg/

 

 

 

 

Gulli litli...
 

 


Nú, þá er þetta allt.........

Vaknaðu mannhundur! Þetta er ENGUM ég endurtek, ENGUM að kenna nemað ÞÉR....

 

Gulli litli Angry


mbl.is Fritzl varpar sök á nasistana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband