Þetta lag verður númer eitt á plötunni FÓLK FER sem kemur út um leið og einhver nennir. Þetta er svona hundleiðinlegt popplag í g dúr. Píkupopp af bestu tegund....Ef gítar er við höndina þá er bara að renna í vinnukonugripin og þau standa undir textanum!
Skelltu laginu á (lagið er í tónspilaranum)og lestu í leiðinni. Ekki gleyma að syngja með.
VEFARINN MIKLI
(systkini systkina minna)
Fremstur á ferð um ókunnar lendur
frægar eru þínar hendur
Í smart-fötum góðum frá í gær
fyrirgefðu , kemst ég nær
Eins og grískra guða siður
gríðarlega vaxinn niður
í augunum þínum sé ég eitt
að undir mér er ekki neitt
viðl.
Ertu systkini systkina minna ?
Sérð´ekki til okkar hinna ?
en ég aðeins vildi á mig minna
í einfeldni minni má ég kynna
mig fyrir þér
Allt sem almáttugur tekur
upp með kossi strax þú vekur
og allt þú gerir og allt þú tryggir
ef vantar hús, þá hús þú byggir
Allt sem fróðir þér reyna að færa
fyrir löngu ert búinn að læra
þeir heppnu fá að sjá þinn heim
og hlusta vel er þú kennir þeim
Listina þínir laga fingur
lifnar allt þegar þú syngur
Ef almúgann langar að yrkja brag
þú allan bætir og semur lag
Allur án þín minn hverfur kraftur
kemur strax er sé ég þig aftur
Síðan Davíð og drottinn földu sig
dísus kræst þá hef ég þig
7/10 2005. © ILLUG
em-g-am-c-d-em
viðl.g-d-em-c-bm-g-c-em-c-d-g
Þið kannist öll við týpuna. Öll komment vel þegin góð og vond!
Gulli litli.
Meginflokkur: Ljóð | Aukaflokkar: Bloggar, Tónlist | 25.4.2008 | 12:03 | Facebook
Athugasemdir
Kúlt! Ég mæli með þessu, Gulli minn.
Þorsteinn Briem, 25.4.2008 kl. 13:06
Og gleðilegt sumar!
Þorsteinn Briem, 25.4.2008 kl. 13:07
Takk ofur Steini og sömuleiðis gleðilegt sumar(á Íslandi, vræt)..
Gulli litli, 25.4.2008 kl. 13:12
Ég man eftir þessu lagi á þorrablótinu þar sem þú hitaðir upp fyrir okkur... híhíhí.
Ingvar Valgeirsson, 25.4.2008 kl. 20:10
skrifaðu mig niður fyrir einu eintaki af þessari plötu þegar hún kemur út fínasta lang og fínt að söngla með.... verð svo að fara að koma mér í heimsókn, þetta gengur ekki ... kær kveðja, Stína
Stína (IP-tala skráð) 25.4.2008 kl. 20:15
Gaman af því Ingvar.....Takk Stína, þá er búið að selja eitt eintak!
Gulli litli, 25.4.2008 kl. 22:35
flott lag tharna á ferdinni verd ad næla mér í eintak af disknum thegar hann kemur út :)
Þóra Lisebeth Gestsdóttir, 26.4.2008 kl. 23:04
Ég á brennt eintak
Röggi (IP-tala skráð) 26.4.2008 kl. 23:14
Kannski að Ojbara records ætti bara að gefa þetta út , það kostar sama og ekki neitt þegar upptökurnar eru til.
Það þarf að selja svona ca.150 eintök til að borga fyrir framleiðslu á 500 eintökum.
Röggi (IP-tala skráð) 26.4.2008 kl. 23:20
þá eru tvö seld!!!Nema Röggi brenni eintak handa Þóru Lísu? Góð hugmynd Röggi...
Gulli litli, 27.4.2008 kl. 08:34
ú ú, já líst vel á ykkuf núna!
Þóra Lisebeth Gestsdóttir, 27.4.2008 kl. 09:58
Hlakka til að heyra!!!!
Guðni Már Henningsson, 27.4.2008 kl. 14:48
Guðni Már, þú getur heyrt í tónspilaranum núna...
Gulli litli, 28.4.2008 kl. 07:31
Ótrúlega flott!
Ef Röggi nennir ekki ad brenna handa öllum, tha geri eg thad gjarnan fyrir vægt gjald....
Sunna Guðlaugsdóttir, 29.4.2008 kl. 12:19
Laufey Sunna! IIIIIIIIIIIIIINNNNNNNNNNN!
Gulli litli, 29.4.2008 kl. 12:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.