Kolröng.......

Verð bara að fá að skjóta inn í umræðuna því ég veit að meira en hálf þjóðin tekur mark á mér og bara mér. Mér hefur sjaldan verið eins skemmt og þegar Kolröng Halldórsdóttir sagði í fréttum að hún væri á móti rannsóknum og vinnslu á Drekanum........Ég meina af hverju sagði hún ekki bara; Það er bannað að kjósa mig! Í gærkvöldi var svo Ámótigrímur sveittur í fréttunum að reyna að breiða yfir bullið í Kolröngu. En nota bene, hún bjargaði hreindýrskálfinum! Nú er svo komið að ég neyðist til að kjósa sjálfan mig.....

 

Gulli litli sómi Íslands, sverð þess og skjöldur..


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Kolröng og Ámótigrímur haha, þú ert óborganlegur.

Rut Sumarliðadóttir, 24.4.2009 kl. 12:42

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Vandamálið við Kolröngu er að hún er í raun andfætlingur sem ekki getur aðlagast aðstæðum og sér því veröldina á haus.

Enda sést það glögglega þegar við hana er tekið viðtal, það er aldrei tekið við "efri endann" á henni.

En það skrítna við þessa öfganáttúruvernasinna flesta er, að þeir gera lítið af því að vinda sér í það að lifa eftir kenningunni, það ætla þeir öðrum.  Fyrstir til að kvarta þegar rafmagnið fer.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 24.4.2009 kl. 13:10

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

X-G?

Hrönn Sigurðardóttir, 25.4.2009 kl. 11:01

4 Smámynd: Gulli litli

Þegar ég er orðinn skársti kosturinn, þá er nú heldur á fótinn í stjórnmálunum er það ekki?

Gulli litli, 25.4.2009 kl. 13:57

5 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Ja, þegar þúsund manns kjósa Ástþór Magnússon hefur eitthvað verið að. Ég myndi fremur kjósa þig en flesta þá sem voru í framboði. Hvar var Stella eiginlega?

Ingvar Valgeirsson, 26.4.2009 kl. 19:21

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Í orlofi........

Hrönn Sigurðardóttir, 26.4.2009 kl. 22:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband