Rétti andinn!

Gleðibanki stofnaður á Skagaströnd

Skagstrendingar stofnuðu Gleðibanka í gærkvöldi að viðstöddum fjölda manns. Allir sem einn staðgreiddu þeir hlut sinn og gekk afgreiðslan afar fljótt fyrir sig enda var enginn hörgull á greiðslu. Í dag gengu svo umboðsmenn Gleðibankans í fyrirtæki og keyptu allir sem ekki gátu mætt á stofnfundinn.

Fyrsta verk Gleðibankans var svo að gefa út  svokallað Gleðikort. Fyrir það fæst veglegur afsláttur í helstu verslunum, veitingahúsum, söluskálum og bensínstöðvum á Skagaströnd, en þau eru Kántrýbær, Söluskálinn, Olís og matvöruverslunin Samkaup Úrval. Líkur benda til þess að allir Skagstrendingar hafi nú fengið Gleðikort og muni nota það á morgun en þá er Afsláttardagurinn mikli á Skagaströnd og þann dag gildir kortið.

Eftir stofnun bankans var gengið til gleðistarfa. Sýndar voru myndir frá skeri nokkru sem er enn kaldara en klaki vor, sagðar voru örskopsögur af Skagstrendingum, leikin var syrpa af jólalögum og í boði Sjóvá fengu gestir kaffi og kökur eins og hver gat í sig  látið. Þess má hér geta að engin krosstengsl eru á milli Gleðibankans og Sjóvá en þó er meira en hugsanlegt að fyrrnefnda fyrirtækið reyni að taka hið síðarnefnda yfir áður en langt um líður.

Gjaldmiðill Gleðibankans er bros. Hluturinn í bankanum er þannig virtur á eitt þúsund bros en gangvirðið er að öllum líkindum miklu hærra og tala menn um fjölda brosa, jafnvel hlátra í því sambandi.

Það óvenjulega við hlutabréf í Gleðibankanum er að hann er ævarandi bundin þeim sem keypti hann. Arðurinn er skattfrjáls en engu að síður framtalsskyldur. Gerð skal grein fyrir eigninni á blaðsíðu 1 á framtali, lið 1.4.

Þar skal rita eftirfarandi texta:

"Undirritaður á 1.000 bros í Gleðibankanum en það eru ómetanleg auðæfi og algjörlega skattfrjáls samkvæmt heilbrigðri skynsemi."

Síðan skal bæta við broskalli :-) og helst lita hann gulan.

Gleðibanki Skagastrandar getur ekki orðið gjaldþrota (það var að vísu líka sagt um gömlu bankana!). Bankinn hefur grínlausa milligöngu um varðveislu verðmæta, hvort heldur þau eru í gríni, skopi eða öðrum gleðigjaldeyri. Hann annast gleðivísitölu, gætir að gengi gríns miðað við aðra miðla og gefur út gleðikort, gleðipillur og gleðibréf af öllu tagi fyrir gleðimenn og konur.

Í trúnaði sagt er einlægur tilgangur stofnenda Gleðibankans á Skagaströnd að hvetja til bjartsýni. Þrátt fyrir alvarlega stöðu þjóðarinnar telja þeir ekki ástæðu til að leggjast í þunglyndi eða berja á náunganum þrátt fyrir smávægilegan skoðanaágreining á þeim málum sem nú er sem mest rætt um.

Við þurfum að vera bjartsýn, sýna hverju öðru velvilja og það er fyrst og fremst gert með því að fólk sýni tilfinningar sínar og brosi, það eykur viðskiptin við bankann. Gleðibankinn er fyrst og fremst spurning um hugarfar. Skagstrendingum finnst nauðsynlegt að geta litið upp frá bölsýni og barlómi og horft á það sem eykur þor og bjartsýni. Nú eru líka að koma jól og brátt fer sól að hækka á lofti.

Gleðibankinn er vettvangur til að láta sér líða vel enda heimsendir ekki í nánd eftir því sem best er vitað. Hlutabréfin eru stæling á því sem við getum átt í veraldlegum eignum, því sem ryðgar bara og fúnar - það er ekkert grín ... Hins vegar er ekkert eins og gleðin sem á sína bestu birtingarmynd í einlægu brosi.

Þessu öllu til staðfestingar þá rituðu stofnendur Gleðibankans þau orð sem þeim finnst vera mest íþyngjandi á litla miða. Þetta voru m.a. orð eins og kreppa, þunglyndi, bankar, skuldir, milljarðar, gjaldþrot, spilling, atvinnuleysi, útrás og verðbólga. Miðunum var síðan troðið í fallbyssu Skagstrendinga og í lok fundarins var skotið úr henni. Brunnu þar upp miðarnir og þar með voru vandamálin fyrir bí - þeim var beinlínis skotið út í veður og hvassan vind.

Fundu Skagstrendingar allir sem einn að þeim var mikið létt eftir þennan gjörning og sneru léttir í lund heim á leið.


Vefstjóri á skagastrond.is

 

Stolið af skagastond.is

 

Gulli litli..


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brattur

... hey... ég kom aðeins að þessu fyrir hönd Samkaupa úrval... vinn þar... ég er mjög kátur með þetta framtak... frumkvæði og skemmtilegheit... húrra húrra húrra fyrir Skagstrendingum... og þér Gulli líka, enda ertu Skagstrendingur líka ef ég man rétt

Brattur, 12.12.2008 kl. 18:12

2 Smámynd: Steingrímur Helgason

Hvar er Höfðakaupstaðarþorpið aftur ?

Er búð þar ?

Steingrímur Helgason, 12.12.2008 kl. 23:37

3 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Ég var eitt sumar á Skagaströnd hjá föðurbróður mínum á góðar minningar þaðan, flott framtak.

Rut Sumarliðadóttir, 13.12.2008 kl. 12:51

4 Smámynd: Guðni Már Henningsson

Ég hef alltaf verið ánægður með gleðimenn og gleðikonur. Sendi kántríbúum mitt blíðasta bros.

Guðni Már Henningsson, 14.12.2008 kl. 13:43

5 Smámynd: Gulli litli

Brattur; Það er alveg rétt hjá þér, ég er mjög stoltur Skagstrendingur og veistu, þar býr bara gott fólk. Ég húrra líka fyrir þeim.

Zteingrímur; Nú talarðu gegn eigin vitund, skarpgáfaður norðlendingurinn!

Rut; Nú segi ég eins og séra Pétur; Hverra manna ert þú góða?

Guðni; Ég er líka mikið fyrir gleðikonur og menn, en það eina sem þarf er blítt bros og jákvætt hugafar...

Gulli litli, 14.12.2008 kl. 17:47

6 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Hmmmmmm..... Gleðibanki Skagastrandar ?

Skyldu þeir hafa sótt hugmyndina í Sparisjóð grínista. 

Á ég kannski rétt á höfundarlaunum ?  Fer fram á 80 brosa hlut. 

Anna Einarsdóttir, 14.12.2008 kl. 18:12

7 identicon

Wahahaha góður þessi með Séra Pétur en veistu hvar maður getur fengið hlut í Gleðibankanum ég á alltaf nóg af brosi og nota það óspart og væri sko alveg til í að eiga hlut enda afar stoltur Skagstrendingur

Sendi þér eitt af mínum brosum kæri frændi

Knús á ykkur

Berglind

Berglind frænka (IP-tala skráð) 15.12.2008 kl. 14:12

8 Smámynd: Gulli litli

Anna; held ad thad séu ótakmörkud hlutabréf í bankanum..

Berglind; ég brosi bara til baka...

Gulli litli, 16.12.2008 kl. 08:05

9 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

 Skemmtilegt og vel til fundið uppátæki.

Kreppan hefur því miður staðið lengur við á Skagaströnd en öðrum landshlutum, velflestum.

 Gott að geta skotið vandamálunum út í hafsauga með fallstykkinu.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 16.12.2008 kl. 14:56

10 Smámynd: Gulli litli

Axel; Bang og engin kreppa.......hljómar vel.

Gulli litli, 16.12.2008 kl. 18:01

11 Smámynd: Guðrún Ágústa Einarsdóttir

 Það er fínt að vera á skagaströnd...ég var í sveit þar á sínum tíma eða þegar ég var krakki.

Þetta er bara flott framtak.

Eigðu góðan sunnudag.

kv Gunna.

Guðrún Ágústa Einarsdóttir, 21.12.2008 kl. 12:04

12 identicon

Gott hjá þeim!

Hefði samt vilja að þeir notuðu fallbyssuna til þess að grisja svolítið til í stjórnkerfinu,held að það dugi ekki að kasta skóm!

Gleðileg Jól,Tuborg og famili.

Kristján Blöndal (IP-tala skráð) 21.12.2008 kl. 17:42

13 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Haha, norðlensk í föðurætt, föðurbróðir minn hét Bergur Lárusson og var einhver stjóri fyrir síldina á Skagaströnd.

Rut Sumarliðadóttir, 22.12.2008 kl. 11:55

14 identicon

Gleðibanki , Peace , og Kanabissss það er gerinilega allt í góðum málum hjá Kúrekunum.

Röggi (IP-tala skráð) 22.12.2008 kl. 21:50

15 Smámynd: Gulli litli

Gunna; Já þar er gott að vera, kveðja á þig..

Stjáni Blö; Það verða alla vega að vera stórir skór...önnur kveðja á þig.

Rut; Þá hefði séra Pétur spurt; Nú, fermdi ég þig?

Röggi; Hampiðjan ehf er liður í atvinnuuppbyggingu á svæðinu! 

Jólakveðjur á alla ......

Gulli litli, 23.12.2008 kl. 09:07

16 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Gleðilega jólahátíð Gulli litli og fjölskylda. 

Anna Einarsdóttir, 24.12.2008 kl. 14:34

17 Smámynd: Guðrún Ágústa Einarsdóttir

Gleðileg jól Gulli litli.

kv Gunna.

Guðrún Ágústa Einarsdóttir, 25.12.2008 kl. 15:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband