Vegna fjölda áskorana og tuðs og suðs hef ég ákveðið að lista upp afrek mín á árinu sem er að líða. Verður ekki farið mjög náið í afrekin og ekki út í nein smáatriði einfalldlega sökum þess að það yrði og langt mál og algerlega óvíst að lesendur mínir báðir(já þú líka pabbi) myndu halda út þá lofgjörð. Verður þetta einföld upptalning til að gera ekki lítið úr þeim sem ekkert gerðu og engu nenntu á árinu.
1. Árið byrjaði vel hjá mér....ég stóð algerlega við áramótaheitið mitt....slappaði af í jan.
2. Man í fljótu bragði eftir að hafa vaskað upp í febrúar!
3. Mars var átakamánuður hjá mér.....ég fór í bað.
4. Apríl.....man ekki eftir neinu sérstöku, en ég hlít að hafa gert eitthvað afgerandi.
5. Maí er alltaf annasamur hjá mér....ég dreif mig í að eiga afmæli maí...líka á árinu þar á undan.
6. Júní.......gaf 50 krónur danskar til Hjálpræðishersins í Aarhus...til að þau þyrftu ekki að syngja.
7. Júlí var einfalldlega of heitur til að gera nokkurn skapaðan hlut!
8. Ágúst....sjá júlí.
9. September...var svo þreyttur eftir annríki ársins að ég fór til Tyrklands..
10. Október....hvíldi mig eftir Tyrklandsförina á Íslandi....Þetta er almennur fengitími..en ég hafði ekki orku...
11. Nóvember...fór allur í að undirbúa desember..
12. Desember fór í að jafna sig eftir undirbúninginn í nóvember fyrir desember...og eitt enn; fór aftur í bað....
Munið bara elskurnar að það er hugurinn sem skiptir máli ekki hvað þú gerir..
Gulli litli zzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzz


jobbisig
jensgud
gudnim
skagstrendingur
tjaldurinn
illa
kiddirokk
lovelikeblood
ingvarvalgeirs
annaeinars
mrniceguy73
aingolfs
beggita
kaffi
bjarnihardar
gisgis
brjann
gattin
brandarar
ellertvh
ea
fjolan
lillo
vglilja
lucas
kokkurinn
hugs
gunnagusta
gudruntora
gthg
hallarut
hannesgi
hallibjarna
blekpenni
hildurhelgas
don
hronnsig
jahernamig
ingvalg
boi
jakobsmagg
jevbmaack
jonaa
jonbjarnason
prakkarinn
ktomm
kobbi68
kolbrunb
larahanna
meistarinn
maggib
skandalan
omarragnarsson
palmig
hafstein
frisk
siggileelewis
nimbus
sigurjonth
luther
solveig-kristin
lehamzdr
steinibriem
lsg
maddit
svanurg
visur7
vefritid
postdoc






Athugasemdir
Það sem undrar mig mest er að ég með alla þessa afrekaskrá setti vöðurnar mínar út í glugga allan desember mánuð og ég fékk ekki einu sinni sveiattan frá sveinka!
Gulli litli, 30.12.2009 kl. 13:24
Gleðileg jólin til þín og þinna, Gulli.
Ég vona að komandi ár verði þér gleðilegt og ekki jafn annasamt og strembið og líðandi ár. Það eru jú takmörk fyrir öllu.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 30.12.2009 kl. 17:12
Vá hvað þetta var strembið ár hjá þér Gulli. Vona að þú náir að hvíla þig betur á því næsta... Annars er það af mér að frétta að ég fékk í skóinn (inniskóinn) í fyrsta skiptið á ævinni. Þetta var lítil bók með einni opnu og þar var spegill... Guð hvað mér brá þegar ég leit í hann...
óver and át...
Brattur, 30.12.2009 kl. 19:26
Skiljanlegt að þú sért þreyttur kallinn. Nýbúinn að vaska upp !
Anna Einarsdóttir, 30.12.2009 kl. 19:33
Axel; Sömuleiðis til þín og þinna...já það eru takmörk fyrir hvað leggjandi er á eina manneskju.....ég hvíli mig vel á nýja árinu með löngum pásum á milli..
Brattur; Já þessir jólasveinar eru óþverar....allavega Rassskellir og Hurðasleikir!
Anna; Já og ég sé ekki betur en að það stefni í annað uppvask 2010!
Gulli litli, 30.12.2009 kl. 22:33
...vonandi samt ekki fyrr en í febrúar!
Hrönn Sigurðardóttir, 30.12.2009 kl. 22:35
Við ættum að splæsa í uppþvottavél. Það er ekki hægt að láta níðast svona á einum og sama manninum. Á hverju ári !
Anna Einarsdóttir, 31.12.2009 kl. 00:00
Gleðilegt árið kæri bloggvinur.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 1.1.2010 kl. 13:41
góður.
hvenær er svo næsta bað?
Brjánn Guðjónsson, 2.1.2010 kl. 00:59
Brattur fékk sumsé Alþýðublaðið í skóinn
Brjánn Guðjónsson, 2.1.2010 kl. 01:00
Hrönn; Ég ætla að reyna að sleppa fram í mars...
Anna; þú ert vinur í raun...
Axek; Sömuleiðis kútur...
Brjánn; Næsta bað er í haust.....Alþýðublaðið....báðar síðurnar..
Gulli litli, 2.1.2010 kl. 11:01
Gulli þú meinar Alþýðubaðið, ekki rétt ?
Brattur, 2.1.2010 kl. 11:45
Batnandi mönnum er best að lifa !!! Ég man nefnilega að þú varst alltaf svo latur hérna áður fyrr.
Kv Röggi
Röggi (IP-tala skráð) 2.1.2010 kl. 12:33
Brattur; Hættu að tala um bað.....ég verð svo þreyttur og lúinn þegar er verið að tala um að gera eitthvað..
Röggi; Já maður er í stórátaki.......sjáumst oft á nýja árinu kútur..
Gulli litli, 2.1.2010 kl. 13:04
Þú verður þá að flytja heim !!! Það er alltof dýrt að koma til Danmörkur þessa dagana :(
Röggi (IP-tala skráð) 2.1.2010 kl. 21:08
Röggi; ég verð nú bara þreyttur við tilhugsunina að flytja...
Gulli litli, 4.1.2010 kl. 19:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.