![]() |
Vill Dani úr Alþjóðahvalveiðiráðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 27.6.2008 | 09:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ég er alltaf á móti dauðarefsingum og tel að við höfum ekki rétt til að taka líf annara. En...einu skiptin sem dauðarefsingar koma upp í huga mér er einmitt í svona málum. Að nauðga barni er audvitad audvirdulegasti og aumasti glæpur sem hægt er að fremja og ég neita því ekki að ég verð oft hugsi um dauðarefsingar er fjallad er um svona mál.......en samt á móti...
![]() |
Ekki dauðasök að nauðga barni samkvæmt Hæstarétt Bandaríkjanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 25.6.2008 | 22:49 (breytt kl. 22:55) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)

![]() |
Bjarndýrsútkall í Langadal |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 24.6.2008 | 20:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Það er eldgamall siður í Danmörku að halda upp á miðsumar með nornabrennu. Þetta hafa Danir gert frá tímum Óðins og Þórs, það er að segja stuttu áður en ég fór að muna eftir mér. Annað hvort 21 eða 22 júní eru lengstu dagar ársins, en alltaf er haldið upp á Sankthans þann 23 júní þó svo að Sankthans dagur sé þann 24 júní. Ha, nú? Já svona er þetta og þetta minnir mig óneitanlega á föður minn. Þannig er að konan mín á afmæli þann 25 júní og hefur það verið þannig alveg frá því að hún fæddist. En pabbi hringir alltaf tveimur dögum fyrr og óskar henni til hamingju með daginn. Hún á bara afmæli á jósmessunni og það breytir því enginn hjá honum. En þetta var nú útúrdúr. Sankthans eða heilagi Hans, er Jóhannes skírari. Hann semsagt heitir Jóhannes en er kallaður Hans! "Jóhannes, vera skýrari"! Hvað um það, Jesú og Jói óskýri skiptu með sér árinu og einhverjir snillingar fundu út að Jesú(vinur Jóa) ætti afmæli þann 25 des og var því alveg gráupplagt að láta Hans Jóhannes eiga afmæli þann 25 júní. En svo vel sleppum við ekki. Fræðimönnum hættir til að gera hluti flókna svo þeir líti út fyrir að vera gáfaðri en við sem neðstir erum í fæðukeðjunni. Þess vegna fundu þeir það út að best væri að Jesú ætti afmæli 6 dögum fyrir 1 jan eða 25 des og Jói boy 6 dögum fyrir 1 júlí eða 24 júní. En það er alltaf haldið upp á afmælið hans Jóa daginn fyrir afmælið hans Jóa! Halda upp á að hann á afmæli á morgun? Nú nenni ég ekki að spá í þetta meira.
Gaman væri að vita hvort einhver botnaði eitthvað í þessari færslu...Ég á svolítið erfitt með það sjálfur.
sr. Guðlaugur litli...
p.s. Gaman að sjá hvað fáir vilja eiga Björn Bjarnason í skoðanakönnuninni hér til hliðar!
Bloggar | 24.6.2008 | 13:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
![]() |
Brúðarklæði úr klósettpappír |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 20.6.2008 | 13:23 (breytt kl. 13:24) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
og allt í gamla daga. Allar ömmur sem eitthvert fútt var í gáfu Malt. Öll börn stór og smá lágu semsagt í fylleríi með ömmum og öfum. Ja, heimur svo sannarlega versnandi fer. Nú fæst ekki lengur Malt með alkahóli, nú þá kaupir maður auðvitað grillsósu þegar maður vill detta í það. Reyndar yrði ég rígmontinn ef einhver myndi einhverntíman spyrja mig um skirteini....
Gulli litli Daniels frá Alkahóli.
![]() |
Of ung til að kaupa grillsósu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 19.6.2008 | 11:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
![]() |
Ísbjörninn að Hrauni dauður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 17.6.2008 | 20:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Selma Dröfn Birgisdóttir og lýðveldið Ísland...
Gulli litli svili Selmu og sonur lýðveldisins Íslands, sverð þess og skjöldur...
p.s. Bendi á funheita og grafalvarlega skoðanakönnun hér til hliðar!
Bloggar | 16.6.2008 | 23:57 (breytt 17.6.2008 kl. 01:32) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
þegar Gulli litli var miklu minni voru hann og Steini á Hrauni nágrannar. Steini sem unglingur og strax efnilegur stórbóndi, Gulli litli sem lítill drengstauli og efnilegur auðnuleysingi. Fjórtán ára flutti Gulli litli burt af Skaganum en Steini býr enn þar þrjátíu árum síðar. Fyrir c.a. fimmtán árum síðan var Gulli litli að svala ævintýraþrá sinni og var staddur á Kastrup flugvelli og átti satt að segja ekki von á að hitta neinn. Hvern hitti ég þar nema Steina á Hrauni. Ég held að ég hafi verið HISSASTI maðurinn í flughöfninni og þó víðar væri leitað. þetta rifjaðist upp fyrir mér nú þegar ég les um ísbjörninn og þá er Steini og dóttir hans og audvitad fjölskyldan öll þungamiðja dagsins. Góðar kveðjur í Hraun og faridi varlega.....
med venlig hilsen
Gulli litli
þeim sem finnst það ekki koma málinu við hvort Steini á Hrauni sé töffari eður ei skal þeim sömu bent á að þeim kemur heldur ekkert við hvað ég skrifa á síduna mína. Ég er orðinn leiður á umræðunni um ísbirni og vil láta fella þá strax! Fólk skiptir mig meira máli er birnir...
![]() |
Erfið aðgerð framundan að Hrauni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 16.6.2008 | 20:13 (breytt 17.6.2008 kl. 00:43) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Er þetta miðað við höfðatölu? Á kannski að reyna að segja manni að besti fiskurinn sé norskur? Besta lambakjötið Þýskt? Bestu álverin í Venesúela? Gulli litli danskur? VÉR MÓTMÆUM ALLIR!
Gulli litli þjóðargersemi....
![]() |
Fegurstu konurnar ekki á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 13.6.2008 | 14:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)