Færsluflokkur: Bloggar

Veit þetta einhver?

Adam og Eva áttu tvo syni Kain og Abel. Mig langar óskapleg að vita hvaðan konurnar koma? Með hverjum átti hver börn svo að fjölgaði í heiminum?Ég viðurkenni vel að ég er ekki trúaður og illa að mér í Biblíunni. Maður gerði margt skemmtilegra í skólanum í gamla daga en að hlusta á Biblíusögur þó þær séu margar skemmtilegar. En semsagt; Hvaðan koma konurnar?

Adam%20and%20Eva%20%20180%20cm%20x%20130%20cm%20%20Acril%20on%20canvas


Óskabarn þjóðarinnar rassskellt...

Einhversstaðar stendur að byltingin borði börnin sín. Ég eyddi 12 árum viða að berjast við þennan þurs Thor%27s-Hammerí mínum fyrirtækjarekstri. Öll árin var ég hafður að fífli og mínu fyrirtæki haldið þannig, að það gat hvorki lifað eða dáið! Auðvitað endaði það þannig að ég hætti, skellti hurðum og fór með margra milljóna skuld út á bakinu. Eyddi næstu fimm árum á eftir í að greiða skuldir mínar og forðast persónulegt gjaldþrot með sjómennsku og fleiri störfum. Ég gæti komið með endalausan lista einyrkja úr flutningabransanum sem hefur sömu sögu að segja. Ég var ungur og gat rifið mig upp. Það voru hinsvegar margir sem voru orðnir gamlir í hettunni og þekktu engin önnur störf en að þjóna sínum heimabyggðum. Engum var lofað að hætta með örlítilli reisn. Allir voru keyrðir í kaf. Ég horfði á eftir mörgum vini mínum í gjaldþrot og þá niðurlægingu að þurfa að sitja og standa eins og ófreskjan sagði. Samskip hagaði sér eins. Með offorsi var heilli starfsstétt eytt..............Auðvitað gleðst ég ekki yfir ástandi Eimskipa núna en þeir höfðu nú engar sérstakar áhyggjur af mér á sínum tíma og öllum mínum gömlu félögum.. Allir muna hvernig þessi mafía fór með Björgólf á sínum tíma...Nú verður það líklega hann sem hysjar upp um Eimskip eftir flenginguna....Ég þurfti að hysja upp um mig sjálfur..

p.s Ég vona að forstjórinn fái launin sín, þó að ég hafi ekki fengið mín...


mbl.is Segir Eimskip skulda sér laun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hin óhreinu börn Adams og Evu?

s5003302.jpg

Þetta er svona nett pirringsblogg.....Nei annars, það þarf meira til að koma mér úr jafnvægi. Þannig er að nú er eplauppskeran í hámarki. Góð og safarík epli út um allt. Þá meina ég út um allt. Á hverju degi er innkeyrslan hjá mér full af eplum. Ekkert við það svosem að athuga, nema að þessi epli tilheyra nágranna okkar. Eplatrén standa á lóð nágrannans og því er uppskeran hans. En hann hefur engan áhuga á þessari uppskeru enda nóg af eplatrjám(tréum) allsstaðar. Ég verð núna að skjóta inn í vísu eftir vin minn til mjög margra ára Rögnvald gáfaða og ég vona að hann rukki mig ekki um nein gjöld þess vegna;

Upphafsmaður skógræktar á Íslandi...

 Hann gróðursetti hríslu
Sem náð'onum upp að hnjám
Þúsund árum síðar
Var allt útatað í trjám

Alla vega stend ég sveittur við að hreinsa epli nágranna míns upp úr innkeyrslunni minni. Talandi um Adam og Evu. Við vitum öll að  Adam og Eva áttu tvo stráka. Þá spyr ég. Hvaðan koma konurnar?Veit það einhver?

 

Gulli litli eplapæ..


Að vera veikur...það eru hinir.

Þetta passaði alveg upp á punkt og prik. Ég er búinn að vera í viðræðum við verkstjórann og forstjórann um verulega kauphækkun mér til handa, mánuðum saman. Ég er búinn að tala fjálglega um kosti mína og reynslu og reynt að gera þeim ljóst hvurslags eðalstarfskraftur ég er. Er skemmst frá því að segja að ég fékk það sem ég vildi. Meðal annars vegna þess að ég er aldrei veikur! Þannig hefur það verið síðastliðin 28 ár og auðvitað 15 árin á undan í sveitinni...Þess vegna var það mjög erfitt og pínlegt að hringja í verkstjórann og segja; Kim......jeg er syg. En hann brást þannig við að hann sjálfur er nú óvinnufær vegna hláturs!

 

Gulli litli hálsbólgu og hita hetja..


Skorstensfejeren kommer torsdag...

Þessi tilkynning beið mín í póst6a00e54fcd4c25883400e552b5ef6e8834-500wikassanum. Ég er svo mikið dæmalaust barn að mér finnst vera ákveðinn ævintýraljómi yfir (ja hvað er nú skorstensfejer á íslensku?Eina sem mér finnst ég hafa heyrt er sótari) sótarastarfinu. Jimjimmijim jimjimmi .... Hvað hét nú aftur myndin með Julie Andrews fljúgandi á regnhlíf? Ég varð alveg heillaður þegar ég sá sótara í fyrsta skipti og það eru bara svona þrjú ár síðan. Þeir eru eins og í ævintýrunum, með stórann pípuhatt, þar sem þeir geyma bókhaldið sitt, svartklæddir upp úr og niðurúr. Þeir bjóða góðan dag og taka ofan og þéra mann. Mjög virðulegt og greinilega mikið lagt upp úr að halda í gamlar hefðir. Var aldrei nein sótarahefð á Íslandi?

 

Góðar stundir fallega fólk..


Nú er ég alveg að deyja úr hissu

Ja, heimur versnandi fer.

 

 

http://blekpenni.blog.is/blog/blekpenni/entry/636961/#comments

 

Gulli litli hissasti maður á Íslandi staddur í Danmörku...

 


Tilvistarkreppa...

Ég var farinn að upplifa mig svolítið einangraðan tónlistalega eftir að vinir mínir og sálufélagar Þór Sigurðsson og Jón Sigurðarson fluttu frá mér á landið bláa. Það meira að segja hvarflaði að mér að flytja á eftir þeim í niðursveiflubingóið þarna heima. En nú er ég feimni sveitastrákurinn á útkíkki hér í DK eftir fólki sem er svona álíka bilað og ég. Þetta útkíkk mitt varð til þess að ég skráði mig í sangskrivere klub sem reyndar er að lognast út af. Þar náði ég að kynnast tveimur tónlistarmönnum, annarsvegar Svend, skemmtilegur gítarleikari með rödd eins og Bob Dylan og hinsvegar rúmlega sextugri amerískri söngkonu og píanóleikara sem hljómar á köflum eins og Kate Bush. Þessir ágætu lagahöfundar og tónlistarmenn vilja gjarnan prófa einhverskonar samvinnu og nú bíð ég spenntur hvert þetta leiðir okkur. En samt ég ég sakna gömlu félaganna..Rögnvaldur gáfaði, Hreinn viðbjóður, Dósi, Hjörtur fokkin ei, Þröstur, Fannar, Stjáni Blö, Þorvaldur Skafta, Þór Sig, Nonni metall og svo mætti endalaust telja....

Gulli litli væmni.


Hlátur og grátur..

Það hlýtur aðs5003119.jpg vera ótvírætt merki þess að maður sé að "komast á aldur" þegar maður á ekkert smábarn lengur. Eins og við hjónin sem erum búin að vera með smábörn í 25 ár og svo fer yngsta barnið í skóla og þá er allt í einu ekkert yngra eftir heima. Að fara í skóla er auðvitað stig upp á við í lífinu en maður veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta þegar ekkert smábarn er eftir. Næsti viðkomustaður er sjálfsagt barnabörn. Bara svona pælingar nú þegar maður þarf ekkert endilega að fara snemma á fætur um helgar...

 

 

 

Gulli gamli

 


Ég er úr....

Ég var klukkaður

 

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:

Sjómaður, bílstjóri, svínahirðir og húsgagnamálari.

Fjórar bíómyndir sem ég held upp á:

Walk the line, In flame, Dalalíf og Köld slóð

Fjórir staðir sem ég hef búið á:

Skagafjörður, Skagaströnd, Aarhus og Bönnerup.

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:

Engir...

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

Svíþjóð. Frakkland,Þýskaland og Írland.

Fjórar síður sem ég heimsæki daglega(fyrir utan bloggsíður)

blocket.se, ebay.com, facebook og autoscout24.de

Fjórir staðir sem ég mundi helst vilja vera á núna:

Íslandi, Puk studio, uppí rúmi sofandi og upp við Ölversvatn á Skaga í silungi.

Fjórir bloggarar sem ég klukka:

Guðni Már, Axel Skagstrendingur, Kiddi rokk og Sunna Guðlaugsdóttir.

 

Gulli litli


Shine a light on Rolling Stones....

Um síðustu helgi fórum ég og konan ásamt nágrönnum okkar Ole og Jetta í bíó. Það eitt og sér er stórfrétt, það er að srolling-stones-keithegja að við hjónin(gift í 18 ár 1 sept) förum í bíó. Mjög viðeigandi mynd eða Shine a light með Rolling Stones, því síðast þegar við fórum að sjá mynd í bíó var það Doors! (smá ýkjur). En það sem var sérstakt við þessa bíóferð var að þetta var útibíó. Í auglýsingunni stóð að maður ætti bara að hafa með sér klapstóla og svo sat maður bara úti á túni í Grenaa og horfði á The Rolling Stones í ljósaskiptunum, í boði Kulturhuset, Kino Grenaa og Djurslandsbank. Fantastisk oplivelse. Myndin er tekin upp 2006 á tónleikum í New York með allslags innskotum á gömlu efni. Síðast sáum við Rolling Stones að mig minnir 1998 í Parken ásamt 49 999 öðrum. Þá hugsaði maður með sér að það ætti bara eftir að velta Keith ofan í gröfina og það þyrfti bara einhver endilega að segja honum að hann væri dauður. Svei mér þá ef að karlinn var ekki bara hressari 2006. Það rifjaðist upp fyrir manni hvað þessi einfalda tónlist er ótrúlega gefandi. Krafturinn, spilagleðin og lífið í þeim er alveg hreint ótrúlegt. Ég meina þessir karlar eru að verða eða kannski orðnir sjötugir! Hvað um það nokkrir gestir sungu með gömlu mönnunum þar á meðal ungstirnið (hún var alla vega einu sinni ungstirni) Christina Aqulera. Yndisfagurt kvendi með stóra rödd. Fyrir utan sjö milljón myg stungur var þetta frábært kvöld og verður lengi í minnum haft....

Gulli litli Stones


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband